Færsluflokkur: Bloggar
Þetta virðist í fyrstu bara starfa eins og banki !
21.9.2011 | 00:01
Þetta virðist nú fljótt á litið starfa og haga sér eins og banki, lokka fólk til að geima fé á reikningum sínum,,, og sólunda svo innistæðunum í glórulausa vitleysu fyrir bankastjórninan og vini þeirra....
Segja pókervef hafa verið svikamyllu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vegurinn í sundur í gær, ferðaþjónustan gjaldþrota daginn eftir...
10.7.2011 | 21:56
Ég held að það sé óhætt að leggja niður ferðaþjónustuna alveg,,, ef að hún verður gjaldþrota á einum sólarhring... Brúinn fór í sundur í gær og þessi atvinnuvegur er byrjaður að gráta yfir því að það sé ekki kominn umm ný brú samdægus...
Ég leyfi mér að spyrja, er það fólk sem að fer fyrir þessum atvinnuvegi alveg veruleikafyrrt eða bara hreinlega heimst.. Þó svo að allir séu að fullum vilja gerðir og allt sé sett á fullt við byggingu nýrrar brúar (sem mér sýnist að sé verið að gera)þá tekur tíma að smíða hana... alveg sama hvað ferðaþjónustan grætur...
Væri ekki betra að hugsa í lausnum ekki leika fórnarlamb endarlaust...
Finnst þetta með ólíkindum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Treysta Sporðdrekum...?
24.4.2011 | 18:04
Sporðdreki og Skjaldbaka stóðu við árbakka og hugðust bæði á ferð yfir ánna, sporðdrekinn spurði skjaldbökunna kurteislega hvort að hann gæti fengið far með henni yfir ánna, standa á bakinu á henni yfir. Skjaldbakann horfði forviða á sporðdrekann og sagði Hvers vegna ætti ég að ferja þig yfir ánna, þegar við erum kominn inní miðja ánna þá stingurðu mig í hálsinn og ég drukkna... Hvers vegna ætti ég að gera það spurði Sporðdrekinn, þá drukkna ég líka,! Skjaldbakann féllst á þessi rök og sporðdrekinn klifrar uppá bak á henni og þau leggja af stað, í miðri á þá finnur skjaldbakann mikinn sting í hálsinum, fer að missa máttinn og byrjar að sökkva,,, þegar Skjaldbakann er að sökkva þá spyr hún Sporðdrekann af hverju gerðir þú þetta, nú drukknum við bæði... Sporðdrekkinn svaraði,,, ég get ekki að því gert... Ég er sporðdreki!
Við getum treyst því að Sporðdrekar eru sporðdrekar... Ég mun aldrei treysta stjórnmálamönnum, embættismönnum eða fjármálamönnum frekar en sporðdrekum... Það er einfaldlega í eðli þeirra að stinga...
Traust er áunnið ekki heimtað....
Verðum að læra að treysta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið Til í þessu...
16.4.2011 | 14:09
Það er mikið til í þessu hjá Bjarna, gallin er hins vegar sá að allar "Aðgerðir" sem reynt hefur verið að fara í eru hundsaðar af bönkunum...
Það þarf að fara að beita miskunarlausum meðulum gegn þeim fjármálafyrirtækjum sem ekki lúta landslögum...
Refsingunum þarf að beina gegn eigendum og stjórnendum bankana...
Þá fer kannski einhvað að lagast hérna.
Atvinnulífinu verði ekki haldið í gíslingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
LÍÚ hefur enn eina ferðina grímulaust sýnt hroka sinn.
16.4.2011 | 14:02
LÍÚ hefur enn eina ferðina grímulaust sýnt hroka sinn... Það verður að stoppa þetta af í eitt skipti fyrir öll...
Það verður að binda varanlega í landslög svo ekki verður útúr snúið að Aulindir landsis eru þjóðareign sem ekki eru einstakra að ráðskast með... Það hefur aldrei sýnt sig betur en með þessarið aðgerð... Þetta er bara forsmekkurinn af því sem kemur fái þeir sitt í gegn.
Ímyndið ykkur tangarhaldið sem þeir munu hafa á Íslensku atvinnulífi fái þeir sitt í gegn... Fyrst að þeir stoppa allt núna bara með því að fá EKKI sínu fram...
Það góða við þetta er að LÍÚ er líka búið að berskjalda sig... Við sjáum hvað þeir óttast mest... Fólkið í landinu og atkvæðisrétt þeirra...
Það verður fróðlegt að filgjast með áróðursstríðinu sem fer í gang þegar auðlindamál landsins fara í Þjóðaratkvæði... Hræðsluáróðurinn verður yfirgengilegur....
Ósvífni og hreint ofbeldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins á að marka leið sem að þjóðinn vill,, Ekki hörundsárir embættismenn.
Það fyrsta sem að Þetta lið þarf að gera er að finna kjark!!
Legg til að það næsta sem gert verður er að svara matsfyrirtækjum fullum hálsi.
Sömu matsfyrirtækjum og þáðu háar greiðslur fyrir að vera klappstýrur bankana þangað til að í óefni var komið. Tæpast er trúverðugleiki þeirra mikil ef nánar er skoðað.
Næst þarf að fara að tala máli þjóðarinnar,, prufið það, ef þið þurfið að vita hvernig það er gert,, Hringið í Ólaf Ragnar Grímsson,, hann getur kannski kennt ykkur það.
En fyrst verðið þið að átta ykkur á því fyrir hvern þið eruð að vinna og hver greiðir ykkur laun...
Íslenska Þjóðinn!!!
Ný leið mörkuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óttast fordæmi Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Látum ekki þreyta okkur heldur!
8.4.2011 | 19:39
Já við Icesave væri uppgjöf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nú skil ég Íslensk stjórnmál... Meira klúður = Meira Traust
8.4.2011 | 15:48
Steingrímur hefur náð útskíra fyrir mér hver drifkraftur íslenskra stjórmála er... Lksins.!!
Klúður = Góður traustsins verður stjórnmálamaður/- Flokkur
Veruleikafyrringin og klikkuninn er farinn að verða aðhlátursefni fyrir lönguu síðan... Hvað þetta lið hins vegar forherðist er hreinlega áhyggjuefni...
Óvíst hvort kjósa þyrfti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mitt NEI á Icesave. Stoppum þessa vittleysu Núna!
8.4.2011 | 07:53
Mitt NEI á Icesave. Stoppum þessa vittleysu Núna!
Pilsfaldakapítalismi er nafnið sem að huglausri fjármálsatarfsemi er gefið. Með einföldum hætti má til sanns vegar færa að vélin sem knýr Pilsfaldakapítalisma er lánakerfi á sterum sem hefur þann eina tilgang að framleiða vaxtaberandi skuldir. Réttlæting lánaþenslu hverju sinni er alltaf einhverskonar bóla.
Peningar verða til með skuld, engu öðru. Bak við hverja krónu, Pund, Evru eða Dollar er skuld sem ber vexti. Engin fasttenging er við föst verðmæti í dag, peningarnir verða einfaldlega til við útgáfu skuldabréfa seðlabanka, hvort sem að það er Seðlabanki Íslands, Evrópu eða Bandakíkjana. Svo fara peningarnir í endalaust vaxtaberandi lánaferðalag. Bæði innláns og útlánsvaxta... Engin verðmæti verða til. Bara olía til að smyrja næstu bólu, spenna hagkerfið, þrýsta á framleiðslu verðmæta til að borga þessa framtíðarvexti.
Vextir eru skilgreining verðmæta fram í tíman. Með öðrum orðum, verðlagning framleiðslu fram í tíman í vöru sem að ekki er orðin til. Því meiri sem skuldsetning er því meiri pressa er á framleiðni heimsins að framleiða, óháð markaðsþörf. Bólan hefur engan tilgang annan en að viðhalda sjálfri sér, þangað til að hún springur. Sem hún eðli málsins samkvæmt gerir, spurningin er bara hvenær.
Framleiðslan er alltaf bundin við næstu bólu Bólan getur verið .Com, Gull, Olía, DeCode, Íbúðarhúsnæði eða hreinlega Stríð... Einfaldlega næsta tíska.
Frægust allra Bóla er Túlípana-Bólan sem náði hámarki árið 1637 við virðumst lítið hafa lært síðan. Hins vegar er tíðni Bóla að aukast ógnarhratt.
Í gegnum tíðina hafa fjárfestar hverrar bólu fyrir sig þurft að standa og falla með sinni þátttöku í bólunni... Almenningur fær þó alltaf þyngsta skellinn. Skellirnir eru að verða tíðari, þyngri og ósanngjarnari... Þökk sé upplýsingatækni, aukinni lestrakunnáttu og getu almennings til að grafa upp sannleikan er farið að þrengja að skýringum Gerendana (höfunda/- fjármagnara) bólanna... Í flestum tilfellum bankar með ítök í auðlyndum.
Til sögunar kemur Pilsfaldakapítalismi Sennilega hefur hann alltaf verið til, núna er hann hins vegar hrópandi áberandi To Big To Fail varð slagorð Pilsfaldakapítalismans. Almenningi hefur verið talin trú um það að ef að þetta kerfi fær ekki að viðgangast þá hrinur heimurinn. Ekkert gæti verið fjarri sannleikanum en það. Sennilega eitt snjallasta áróðursbragð síðari tíma.
Huglaus fjármálastafsemi (Pilsfaldakapítalismi) er fyrirbæri þar sem að fjárfestinn þarf ekki að standa skil á neinu nema að hirða gróða ef að vel gengur og fela sig undir pilsfaldi skattgreiðenda ef illa fer.
Það mun alltaf fara illa ef að gjörðir eru afleiðingalausar, það er að segja neikvæðar afleiðingar eru faldar gerendum. Rétt eins og með uppeldi þá verða börn óþekk án aðhalds, eins verður græðgi dómgreindarlaus án aðhalds.
Icesave er hreinræktað afkvæmi þessarar þróunar... Það sem hins vegar aðskilur Icesave frá öðrum ríkisvæddum bólum sem fara illa er það einstaka tækifæri að þetta er í fyrsta sinn sem að skuldaberandi almenningur fær að spyrna við.
Heilt yfir fær almenningur Eitt tækifæri til að segja NEI! Við vorum ekki spurð álits með Seðlabankann, Sparisjóðina, Sjóvá, fjármögnunarfyrirtækin... og allt hitt sem að ég man nú ekki einu sinni hvað er allt saman. Því var bara skellt á okkur undir formerkjum björgunaraðgerðar... Bjarga hverju veit ég ekki... Sama liðið er við völd í góðum þægilegum stöðum og bíður næstu bólu.
Hafi verið til eitthvað sem að væri virk refsiábyrgð hefðu þeir sem ábyrgð á þessu öllu saman bera kannski hagað sér öðruvísi og ekki farið sem fór. Í það minnsta ekki á þessum mælikvarða.
Icesave er langt því frá að vera stæðasta einstaka afleiðingin í hruninu. Icesave er hins vegar það viðkvæmasta, og það réttilega. Það er einmitt það sem að gerir það svo jákvætt. Um er að ræða milliríkjadeilu sem ekki er svo auðveldlega sópað undir teppið.
Það er svo viðkvæmt að öll umræða um það opnar á eðli pilsfaldakapítalismans, og það þolir fjármálaelítan ekki... Smám saman er fólk að fatta hvernig sjónhverfingar gerspilltrar valdaelítunar virka... Galdramaðurinn verður nakinn á sviðinu.
Um leið og áhorfendur hætta að dást að snilli sjónhverfingarinnar er spilið búið.
Eftir allnokkrar tilraunir stjórnvalda án árangurs til að þvinga komandi kynslóðir ekki bara til að borga þetta, heldur líka sem verra er Viðhalda þessu meingallað kerfi er farið að gæta mikillar örvæntingar hræðsluáróður og beinar hótanir eru farnar að stjórna málflutningnum.
NEI við Icesave er ekki bara NEI við Icesave. NEI eru líka skýr skilaboð við því að það er komið nóg af þessari vistleysu, Keðjuverkun bóla sem að gera ekkert annað en að búa til skuldir sem aldrei verða greiddar, en hneppa æ fleiri í ánauð með stéttaskiptingu og mismunum kynslóðana sem á eftir okkur koma.
NEI við Icesave er ekki bara skilaboð til þeirra sem að ábyrgð á Icesave bera að þeir skulu bara standa skil á sínu sjálfir, rétt eins og öllum öðrum er ætlað að gera... Heldur líka að við viljum ekki að þetta gerist aftur.
Öll Evrópa og Bandaríkin, og víðar eru að fylgjast með því sem að hér gerist á Laugardaginn. Já eða Nei við Icesave gefur tóninn í hvort að ríkisvæða eigi næstu bólur sem á eftir koma... Er almenningi ætlað að gefa út endalausa óútfyllta tékka til að viðhalda þessu Ómissandi kerfi
Hvernig Framtíð villt þú ?Hvað ætlar þú að gera ?
Þetta er mitt NEI!
Virðingarfyllst
Friðgeir Sveinsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)